Ferð lífs míns. Lítið brot.

Síðla sumars fór ég í ferð sem mun að öllum líkindum aldrei hverfa fyllilega úr huga mér né hjarta. Þetta var ferð lífs míns.



Ég hugsaði með mér að ef aðeins ég gæti fengið þó ekki væri nema dass af fabinu sem rauðklæddu konurnar með skærin hafa. Smá af kjút-nessinu sem beibíið með kringluna hefur. Ef lífið væri svo gott að kasta á mig eitt stykki vængjum og bakarahúfu.



Þessi gæi var illa nettur á því. Hafði það að leiðarljósi í lífinu að "stöffa" saklausum túristum í Zoo-inn. Hann hittum við Valgerður, samferðarkona mín, í Berlín, nánast tiltekið á Zoologischer Garten.



Þarna erum við komin yfir landmærin í suð-austri og yfir til höfuðborgar Tékklands, Prag. Ef ég ætti eina ósk þá væri það ef til vill (athugið ef til vill) sú að fá að hafa þetta nafn á dyrabjöllunni í framtíðar húsakynnum mínum. Maður hatar nefnilega ekki Kafka.



Það var fleira bombað í seinni heimsstyrjöld en saklausar eða ekki saklausar manneskjur, þar á meðal kirkja þessi sem stendur í Vesturhluta Berlínar.


Í ferð lífs míns var Berlínar-Björninn aldrei langt undan, en Vala hefur einmitt lofað myndasyrpu um hið glæsta dýr von bráðar. Hér gefur að líta Berlínar-krúttið á einni lest borgarinnar, en þess má kannski geta að Berlínar-Björninn var alls staðar, hvert sem auga mitt leitaði fann ég hann.



TV-tower í Berlín. Austur-Berlínarbúar reistu turn þennan meðan múrinn mikli lá enn um borgina til þess að sanna hvað í þeim bjó á sviði himinhárra mannvirkja. Mér finnst þetta mikla reðurtákn megafab.


Hér gefur að líta áróðursskilti sem við fundum á Gyðingasafninu í Berlín. Forðist Gyðinga, ekki vera nálægt Gyðingum, talið ekki við Gyðinga, eigið ekki viðskipti við Gyðinga - eitthvað í þessum dúr held ég að skilaboð þess séu. Án þess að vita það þar sem ég tala ekki þýsku fyrir utan "bitte" sem ég fann ágætis ástæðu til þess að nota í ótæpilegu magni í túrnum.

 
Að lokum. Staðurinn sem mig dreymir um daga og nætur og ég vildi að ég gæti alltaf vaknað á. Bóhemía. Það er eitthvað svo útópíulegt og yndislegt við þetta nafn og staðinn sem því fylgir að ég held svei mér þá að lífið sé þar. Í Bóhemíu.

Bóhemíu-Björg. Hljómar ekki sem verst.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hef borðað í sjónvarpsturninum. Hann snýst. 

Stígur Helgason (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 16:27

2 Smámynd: Valbjörg

Fab-stig fyrir það Stígur. Og hæ-fæf!

Valbjörg, 28.9.2007 kl. 17:00

3 identicon

Skemmtilegar myndir, og textinn er enn skemmtilegri. Kannast við þessa tilfinningu um "ferð lífs þíns", ég upplifði hana í Bretlandsferðinni miklu '98! 

Soffía (IP-tala skráð) 29.9.2007 kl. 22:18

4 identicon

Ó !

Nostalgían skekur mig svo af slíkum krafti að ég hræðist.

Myndasyrpa af leik Bóhemíu-Bjargar og Berlínar-Birninum mun gleðja sjónskynjun lesenda Sverðkattar innan tíðar. Aldrei að vita að nokkrar eldvörpu-myndir fái að laumast með.

Af öðru:

Sannleikurinn er fundinn. Hann kristallast í orðum djúphugsuðarins Cretu:

''Um leið og maður hefur týnt eldvörpunni hefur maður týnt lífinu.''

Sannleiks-krossfarinn Malta (IP-tala skráð) 30.9.2007 kl. 13:38

5 identicon

Já, Soffa mín, maður hatar ekki þessar "ferðir lífs síns." Hvernig er annars heilsan, mamma sagði mér að þú væri eitthvað haldin slappleika?

Og ég er svei mér þá ekki frá því að þetta eldvörpu-kvót sé það gáfulegasta sem hefur sloppið upp úr rámum raddböndum mínum í langan tíma... þessum sömu raddböndum og munu gera hljómsveit okkar heimsfræga!

Björg (IP-tala skráð) 30.9.2007 kl. 16:59

6 identicon

þetta er alveg hreint yndislegt blogg elsku Bjölla!

Mun sjálf, áður en langt um líður bera hina fögru Berlín augum.... hlakka til!

Ást frá DK

Margrét Rós (IP-tala skráð) 3.10.2007 kl. 15:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband